Hafnarborg
2009
Á næstum fjörutíu ára ferli hefur Jónína þróað með sér ákaflega persónulegt myndmál sem vísar í senn til hversdagslegra hluta og abstrakt forma eða hreinna hugmynda. Viðfangsefnin eru fölbreytt og gefa glögga vísbendingu um stöðuga leit hennar og næma skynjun fyrir mennskunni: Uppruna, sögunni, samtímanum og ekki síst náttúrunni og þeirri dulúð og þeim ægikrafti sem þar býr undir.+
Jónína kemur aftur og aftur að sömu viðfangsefnum, greinir þau sundur og þróar áfram, svo nálgun hennar við þau verður í senn dýpri og tærari með hverri sýningu. Þótt sýningar hennar vitni um sterka persónulega afstöðu endurspegla þær líka þá þróun sem orðið hefur í íslenskri samtímalist, ekki síst í því hvernig hún tekst á við íslenskt efni – sögu, land og fólk – og fellir þá rannsókn með ýmsum hætti inn í verk sín.
Pétrún Pétursdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar – Menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar