Um Jónínu

Jónína Guðnadóttir hefur um árabil verið í framvarðasveit íslenskra leirlistamanna og vakti snemma athygli fyrir einstaka nytjahluti. Hún var öflugur brautryðjandi þess að nota leirinn sem efnivið sjálfstæðra listaverka.

Námsferill

1960–1962
Myndlista- og handíðaskóli Íslands, Rvk
1962–1963
Myndlistarskólinn í Reykjavík
1963–1967
Konstfackskolan í Stokkhólmi
1967–1968
Framhaldsár við Konstfackskolan í Stokkhólmi

Verk á söfnum og öðrum opinberum stöðum

Listasafn Íslands
Hafnaborg, menningar- og listastofnun Hfj.
Listasafn Kópavogs
Kirkjugarðar Reykjavíkur
Hjálpartækjabankinn (keypt af Rauða krossi Íslands)
Listráð Cuxhaven, Þýskalandi
Listasafn Reykjavíkur
Utanríkisráðuneytið
Listasafn Akureyrar
Skattstofa Suðurlands
Bókasafn Hafnarfjarðar
GRASSI Museum für Angewandte Kunst, Leipzig

Brautryðjandi í notkun leirs sem efnivið sjálfstæðra listaverka

Ég vil gjarnan fá verkefni þar sem kunnátta mín í gerð lágmynda úr leir, steypu, málmum og öðrum efnum nýtist. Ég vinn helst á stóra fleti innanhúss og utan eins og komið hefur fram á sýningum mínum undanfarið. Hef áhuga á verkefni þar sem ég þarf að glíma við takmarkanir og möguleika rýmisins og nýti mér eigindir efnisins.